Veðrið á Möltu
Sendu sms!
Hvað er í sjónvarpinu ??
Malta 2006
30.11.2008 13:30:41 / beta

Endalok

Þakka fyrir mig... Knús og kiss... :)

Lifið heil... :!:

Kv. Beta


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 00:07:13 / beta

Tími á blogg..jább

Hey hó..

Ég er á lífi.. sumarið búið að vera fínt.. vinna vinna.. gengur vel í apótekinu.. búin að gera ýmislegt.. kíkkti norður á bíladögum.. sumarbústaðarferðir með famelíunni og já bara tjillað og haft það gott.. :) 

EN kjellan er að fara að toppa sumarið eftir 3 daga! Mín er að fara að skella sér til Möltu baby á miðvikudaginn og vá hvað ég get ekki beðið !! :) Rúmlega tvö ár síðan þriggja mánaða Möltuævintýri okkar Hörpu lauk og kominn tími á að heimsækja sænsku félagana sem búa þar ennþá! :) Því miður kemst Harpa ekki með í heimsóknina þetta skiptið þar sem hún mun að öllum líkindum verða mommy á meðan ég er úti.. og verð ég bara að bíða spennt eftir barna smsi frá elskunni úti í sólinni! :) Byrjaði að pakka áðan og vá það er sko alls ekkert leiðinlegt.. ! Ég fer í loftið eldsnemma á miðvikudagsmorgun og millilendi í London, EN þarf að bíða þar á flugvellinum í litla 8 tíma takk fyrir pent ! Uhhuuu.. sjett það verður stuuuuð... en er á fullu að redda einhverju skemmtilegu í tölvuna svo maður hafi nú eitthvað að gera á meðan ég bíð! ;) Lendi ekki fyrr en um miðnætti á Möltu, en það er í lagi því það er nægur tími í strandarferðir, verslunarferðir og DJAMM ! ;) Fer svo aftur heim seinni partinn 3. ágúst og fínt að það er lokað í apó 4. ágúst þannig ég hef einn dag til að trappa mig niður áður en ég mæti í vinnuna aftur ;)

Ætla vinna í nokkrar vikur í ágúst og svo byrjar skólinn aftur 1. sept.. hlakka mikið til að hitta Laugarvatnskrakkana mína aftur og kynnast busunum! :)

Jæja gott í bili.. veit ég er búin að sökka í þessu bloggi en það lagast þegar ég er komin á vatnið aftur;)



Kv. Beta sem verður ákkúrat ÞARNA eftir nokkra daga! ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.05.2008 23:20:07 / beta

Styttist í próflok og nýja sumarvinnan tekur við:)

Jæja, langt síðan seinast. Afsakið það.
Er á fullu í prófalestri og á eitt ógeðispróf eftir.. lífeðlisfræðin góða.. úff úff.. 8|:s:|

Klára á fimmtudaginn og vá hvað ég get ekki beðið !!! Eftir prófið ætlar bekkurinn uppí geggjaðan bústað þar sem við ætlum að djamma af okkur rassinn og fagna þess að 1 ár er búið og aðeins 2 ár í að við verðum íþróttafræðingar!! :D vúhú ! Svo liggur leið mín í borgina þar sem verður djammað enn meira með elskunum mínum.. CAN´T WAIT ! :haha:

Mín fór svo í atvinnuviðtal í dag og var ráðin á staðnum! ;) Algjör snilld.. Ég verð semsagt að apótekast í Lyfju á Laugarveginum í sumar! :):) Sem er við hliðina á Vegamótum btw þannig það verður stutt í Rósellu mína og svo er Helga vinkona líka að fara að vinna í 101 RVK ! :haha: Ég hlakka mikið til enda spennandi starf hér á ferð og ólíkt því sem maður hefur verið að gera í gegnum tíðina:) Byrja á mánudaginn næsta og er að fíla að fá gott helgarfrí eftir prófatörnina til að ná sér aðeins niður, skila herberginu sínu og svo að sjálfsögðu FAGNA!


Lee félagi minn! :haha:

Jæja, back to buisness.. elska að læra lífeðlisfræði.. EKKI !

Wish me luck ! 8|

Kv. Beta summer apótekari :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 12:51:22 / beta

MYNDIR !!!


Loksins Loksins komnar inn myndir frá:
 kvennaferðinni, 
karlaferðinni
og
Skíðaferð á Akureyri 1 !!! :haha:

Þið sjáið þær undir PIC 2008 - Laugarvatn hér til hliðar ! ;)

 *Einnig komnar myndir undir PIC 2008 ! :)
22 ára afmæli Ragga Njáls,
23 ára afmæli Óla Sig og skrall,
Matarboð hjá Helga,
Akureyri páskar 1 og
Akureyri páskar 2  !! :)

Mín er komin á skrið og því von á fleirum myndum very soon! :)

Kv. Beta ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 00:47:31 / beta

Halló Halló Hallóóóó

Eeeeeeyy.. Betan er mætt fersk aftur á gamla góða bloggið sem aldrei fyrrr!!!!:lol:

Djók... en nú er allavega bjartari tími framundan hérna á beat blogginu.. og á Helga elskan þann heiður að koma mér back in the buisness babies... búin að kenna mér að setja inn myndir hérna inn ójá eða sjittttttt frekar kannski þar sem ég á billjón myndir sem bíða eftir að fá að líta dagsins ljós hérna til hliðar! Haha... þannig busy time hjá mér framundan eða svona skulum segja þegar ég er búin í prófum og svoleiðis veseni... ehhh.. :) Þetta var nú meira ruglið hjá blog.central að koma með einhverjar voða tækninýjungar sem Beta litla var enganvegin að höndla... en já allt er gott sem endar vel.. ;)

En það er eitthvað voða lítið í fréttum.. lífið gengur sinn vanagang en smá tilbreyting þessa vikuna...veiii.. er í vettvangsnámi í gamla "góða" Hvaleyrarskóla þessa dagana í 220 Hafnarfirði.. frekar weird að koma þarna inná kennarastofuna í dag og mæta þessu liði sem var duglegt við að henda mér til skólastjórans í gamla daga... hahaha... ég var nátla bara crazy krakki og lofaði ég í dag að ég væri loksins orðin stillt og góð ! ;)

Ég er með Ómar AkA Bangza snilling  mér við hlið sem gerir vettvangsnámið enn skemmtilegra og gekk bara svona fínt hjá okkur í dag að fylgjast með sundkennslunni hjá 1. - 4. bekk... ;):) Svo er það bara píptest allan morgundaginn í íþróttasalnum þannig það verður skemmtilegt að reyna að sofna annað kvöld með.. start on level 1...dídúdú..bib...bib...bib...start on level 2... dídúdú...bib...bib...bib..start on level 3...dídúdú...bib..bib..bib.. og þið þekkið framhaldið.. á heilanum !!! vúhúú.. hahhaha... can´t wait ! ;)  En já skemmtileg vika framundan og gaman að fá að kynnast þessu live.. maður lærir klárlega mest af því í stað þess að hanga inní skólastofu.

Við Helga erum búnar að vera að dúllast svo í dag með hana Diljá Karen sætustu... kikktum í sund og borðuðum agalega góðan kjúlla í kvöldmat og mín fær að gista í nótt... sem er hentugt því það er svo stutt þá uppí skóla:)

En jæja... held þetta sé orðið gott í bili ;) Mín er komin aftur eftir góða pásu þannig stay tuned elskurnar...

Hafið það gott rassgötin mín...



Kv. Betulingur


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 12:38:05 / beta

Blog.central DrAsL !!

Einsog þið sjáið þá er síðan mín búin að vera í fokki undanfarið..!! :evil::^):^) útaf einhverjum helv breytingum hjá blog.central sem er bara ekki að virka!!
 
Ég hef t.d. ekki hugmynd um hvernig ég get sett inn myndir því þetta stjórnborð er gjörsamlega óskiljanlegt! Er alveg að gefast uppá þessu þar sem ég er orðin leið á að myndirnar mínar sem ég legg mikla vinnu í að setja hingað inn hverfi alltaf jafnóðum..! Þeir hjá blog.central eru ennþá að vinna í þessu þannig að ég vona að allt komist í lag sem fyrst ! Annars held ég að ég verði bara að leggja árar í bát ! :$ 

Sjáum til hvernig þetta fer..

Bestu kveðjur

Beta 


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 17:11:02 / beta

ATH : Nýjar myndir !! Skrall 2. feb og leynivinaball á Laugarvatni ! :) Uppfært !

 

Jess.. mín er komin á skrið aftur eftir að hafa eignast nýja myndavél.. LOKSINS!! :) 

Ég og Steinunn mín gerðum okkur gott kvöld og kíkktum aðeins á lífið á laugardaginn.. Rósella okkar var búin að vinna mjög seint og settist aðeins niður með okkur áður en hún þurfti að fara heim að lúlla vegna vinnu morguninn eftir.. búhú.. hún tekur á því með okkur næst ! :)

Myndirnar eru komnar á sinn stað undir PIC 2008 !

Svo er allt að gerast hérna á vatninu.. leynivinavika í fullum gangi og er alveg óhætt að segja að leynivinurinn minn er snillingur.. búin að fá frumsamin ljóð um mig á hverjum degi og súkkulaðistykki fylgir alltaf með...:):) Maður ætti kannski að taka hann til fyrirmyndar og semja ljóð.. haha einmitt!! :haha:  

Svo á miðvikudaginn er leynivinaball og þá verða allir hellaðir einsog okkur er lagið hérna á Laugarvatni og við komumst að því hver leynivinur hvers er :) Úúú... hrikalega spennó alveg ! ;)

ATH !

Myndir frá Leynivinaballinu eru komnar inn undir PIC 2008-Laugarvatn:)

Jæja er farin að gera eitthvað af viti..

Later oligater :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 20:24:52 / beta

Loksins nýjar myndir ! Afmæli Halla bró og fyrsta kennslan okkar á Laugarvatni !! :)

 

Sæl veriði folks.. var að henda inn myndum frá helginni :) Halli bróðir á afmæli í dag.. til hamingju með það elskan.. 23 ára drengurinn og hélt hann uppá það á laugardaginn.. í boði voru geggjaðar bollur.. sem reyndust svo stórhættulegar því allt í einu var ég löggst inní rúm með glasið í hendinni takk fyrir pent og var ég víst ekki lengi að hella innihaldinu niður í rúmið.. kemur Beta! 8| Jáhh ég drekk sjaaaldan og ætti bara að halda mig áfram við edrúmennskuna held ég!!:S Allavega var þetta ótrúlega skemmtilegt kvöld þangað til að ég varð ofurölvi og varð ég að láta skutla mér heim í kotið í stað þess að halda niður í bæ með krökkunum! Damn.. ég sem var farin að hlakka svo til að fara á bæjarrölt í 101 Rvk enda ekki búin djamma síðan ég veit ekki hvenær!

   

Elskulegu systkinin mín.. Margrét, Halli, Heiða og ég :)

Margrét eitthvað að misskilja þetta.. haha!! ;)

Alltaf svo gaman hjá okkur þegar við hittumst! Elska ykkur ;*

Myndirnar eru allavega undir PIC 2008 !! :)

Einnig komnar myndir frá fyrstu kennslunni okkar hérna á Laugarvatni þegar 10. bekkur frá Selfossi kom í heimsókn ! :)

Myndirnar eru undir PIC 2008 - Laugarvatn

Svo eitt að lokum... Elsku sætasti 5 ára brósaprinsinn minn var að missa sína fyrstu tönn !!! Haha.. alveg fáránleg tilhugsun.. litla rassgatið okkar heldur betur að verða stór strákur ! Verð nú að láta eina mynd af sætilíus með ;)

Hehe... illa sáttur.. ;)

Jæja.. Laugarvatnsstrákarnir að fara að keppa í handbolta útí húsi og maður verður víst að fara og styðja sína menn ! Áfram Laugdælingar! ;)

Hey.. kvitta svo krakkarassgöt.. ;) 

Blessó.. :)

Kv. Beta


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 16:40:12 / beta

Komin aftur á vetrarvatnið !!

 

Jæja folks.. þá er mín mætt aftur á Laugarvatn og skólinn byrjaður eftir langt og gott jólafrí ! Meðal annars var fyrsti sundtíminn í dag og get ég ekki sagt að það hafi verið neitt rosalega hlýtt einsog þessi mynd gefur kannski til kynna! 8| Brrrrrrrrr........!!!

Jább... það er allt á KAFI í snjó og skemmtu sér margir við að horfa útum gluggann á krakkana berjast við að koma bílunum sínum útaf bílaplaninu í dag !! Það er búið að snjóa og snjóa í ALLAN dag og lentu krakkarnir víst aldrei í þessu seinasta vetur. Sumir Reykjavíkurbúar eru því fastir hérna á vatninu og fá að lúlla í tómum herbergjum eða hjá vinum í nótt.. :) Snjórinn er orðinn miku meiri núna en á þessari mynd og vorum við að koma úr búðinni og var ekkert auðvelt að labba í snjó sem nær manni uppað hnjám en þetta tókst á endanum og ætla ég að elda dýrindispasta og svo verður haft það kósý innandyra í kvöld svona í kuldanum!

Mynd tekin 16. jan...greyið bíllinn minn orðinn að snjóskafli !! 8|

Kvíði fyrir næsta sundtíma... hélt að eyrun myndu frjósa af mér í dag! 8|:S

Kem svo með fleiri fréttir af Laugarvatni þannig þið fylgist bara með! Komin með aðra elsku uppá arminn!! Nýja myndavél... þannig nú fara hlutirnir að gerast ! ;)

Þangað til næst...

Later :)  


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 17:50:55 / beta

Lítil prinsessa komin í heiminn !!! :)

 

Óðinn eignaðist litla gullfallega systur klukkan 9:40 í morgun !! :) Búin að knúsa hana í allan dag og gvööð hún er svo lítil og sæt ! ;) 13 merkur og 48 cm.. Hún lét heldur betur bíða eftir sér en Mæja tengdamamma var sett 1.janúar svo loksins kom hún í heiminn í dag með keisara og gekk allt vel !:D

Litla sæta 5 klukkustunda gömul :)

Beta ekki lengi að knúsast í splúnkunýju mágkonunni sinni;) Bára stóra systir með :)

Mússímúss..;):)

Hildur vinkona eignaðist einnig gullfallega prinsessu þann 27. desember síðastliðinn! :)

Prinsessan hjá sætu mömmu sinni.. vikugömul :) 

Auðvitað fékk mín að máta ;)

Jáhh.. þær eru heldur betur yndislegar báðar tvær og ekkert skemmtilegra en að fá að knúsast í litlum krílum!;):)

Vil svo nota tækifærið og óska Eddu Hermanns og Halldóri innilega til hamingju með litlu sætu Emilíu sína! :)  

Þangað til næst.. hafið það gott folks..!

Kv. Beta :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 19:29:08 / beta

Gleðilega hátíð :)

Var búin að skrifa dágóða færslu sem datt svo út en því miður nenni ég einfaldlega ekki að skrifa hana aftur.. við skulum bara hafa punktablogg í þetta skiptið ! ;)

* Gleðilegt jól og nýtt ár !

* Þó að ég sé pínu sein í þessu..

* Jólin voru yndisleg

* Fékk fullt af fallegum jólagjöfum..:)

* Ég er ennþá á Ak City..

* Mæja tengdamamma var sett 1. jan en allt er ósköp rólegt ennþá.. þannig við bíðum spennt eftir lille baby :)

* Óðinn kemur aftur norður þegar litla systkinið er komið í heiminn :)

* 9 dagar eftir af jólafríinu..

* Hlakka ofsa til að hitta krakkana á Laugarvatni aftur eftir langt frí.. en kvíði þó nokkuð fyrir önninni sjálfri :S

* Verð ofan í sundlauginni næstu mánuði sem er ekkert spes þar sem ég kann ekki að synda

* Kemur Beta

* Að lokum : KOMNAR INN MYNDIR FRÁ GAMLÁRSKVÖLDI UNDIR MYNDIR 2007 !!!

* Megið alveg skilja eftir ykkur smá spor.. svona í tilefni af nýju ári.. ;)

* Klárlega áramótamyndin í ár.. hahah!! :) 

* Later :) 


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 19:42:11 / beta

Eintóm gleði !! :)

Ég er komin í jóóóóóólafrí !!!!!!!!!! :):):)

Fór í seinasta prófið í dag.. helv.. lífeðlisfræðina.. sem gekk ekki nógu vel.. bið bara til guðs um að ég hafi náð.. annars er það ekki heimsendir.. þá skellir kjellan sér bara í upptökupróf... en váá.. enganvegin að meika það þannig við vonum það besta ! Engu að síður er ég komin í jólafrí sem er geggjað ! Ég er gjörsamlega búin á því.. búnir að vera erfiðir seinustu dagar og lítið sofið ! Brunaði heim í litla kotið áðan og lá leiðin beinustu leið uppí besta sófann minn sem ég er búin að sjá í hyllingum alla vikuna ! Ahhh þannig nú ligg ég bara í rólegheitunum með tærnar uppí loft.. ooo so gott ;)

Ætla að gera nákvæmlega ekki neitt í kvöld...bara rólegheit í penthouse 101 ;) Svo verð ég aðeins að vinna framað jólum.. í sjoppu í Grafarvoginum sem NætursöluBragi á..jeijj.. ég ætti að vera vön eftir Ak-inn í denn..;) En já fínt að næla sér í smá auka penge þegar maður er líklega fátækasti námsmaður heims !

Svo verður forvitnilegt að fá fyrstu einkunnirnar sínar í háskóla.. vonandi að þær verði nú ekki alslæmar en ég þarf víst að bíða í slatta tíma eftir þeim þannig nú er bara að bíða og sjá.

Jæja ætla halda áfram að vera letidýr.. :)

 

Kv. Beta sem er svei mér þá komin í jólaskap ! ;):)  


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 02:49:00 / beta

Andvaka

Já best að skella inn einni færslu eða svo áður en maður sofnar... sem hefur ekkert verið að ganga of vel undanfarið.. en jæja.. hvað er í fréttum hmmmm... ekkert voðalega mikið frekar en vanalega.

Fór að horfa á Halla bró á Broadway í Herra Ísland á miðvikudaginn og stóð hann sig rosalega vel og fannst mér hann eiga alveg jafn mikinn möguleika og allir hinir:) Ég skemmti mér allavegana vel og heyrðist víst vel í okkur systrum í sjónvarpinu haha.. en ekki hvað !! ;)

Annars var ég að fatta í kvöld að fyrsta önnin mín hérna á Laugarvatni er senn að ljúka ! Váá hvað þetta er búið að vera fljótt að líða.. við erum að tala um að það eru 3 skóladagar eftir.. fimleikapróf á morgun og danspróf á föstudaginn.. og að sjálfsögðu einhver verkefnaskil ! Svo fer ég í 1 lokapróf þann 10.des sem er frekar ljúft.. sniðugt við þennan skóla að maður tekur lokapróf eftir hvern kúrs þannig þau séu ekki öll eftir í desember.. húrra fyrir því ! :) Ég er samt drullukvíðin fyrir þessu eina lokaprófi sem ég á eftir.. því það eru 3 einingar í húfi !! En það þýðir sko ekkert að fara að drulla á sig núna þegar það hefur gengið svona vel.. allavega er ég mjög sátt við einkunnirnar sem ég hef fengið hingað til hérna á vatninu góða, aldrei þessu vant !! :);) Svo er ég þokkalega ekki að nenna að fara í upptökupróf í janúar þannig það er um að gera að standa sig ! Þannig ef allt gengur að óskum verð ég komin í jólafrí 10.desember sem hefur bara aldrei gerst á ævi minni held ég:) Svo byrjar skólinn ekki aftur fyrr en í fyrsta lagi 10. janúar.. sem þýðir mánuður í jólafrí=SNILLD ! :haha:

Annars veit ég ekkert hvenær ég verð komin norður og hvað ég staldra lengi við.. vonandi sem lengst !! Get ekki beðið eftir að hitta alla um jólin.. þá verður líka loksins smá líf í bænum.. ekki veitir af segi ég nú bara.. :| En Óðinn kallinn þarf víst að vinna mikið og ef ég elti hann þá verður heimsóknin styttri en ég hefði vonast eftir.. svo ríkir rosa spenna í famelíunni þar sem Ódi minn er að verða stóri bróðir um áramótin !! :D:D Jessör.. ekkert smá spennó.. pabbi Óda og Mæja eiga von á litlum engli sem á að koma í heiminn 1. janúar ! :):) Það verður æði og ótrúlegt hvað er stutt í litla krílið !  :) 

Og þá vil ég endilega nota tækifærið aftur og óska elsku Kötu V og Gylfa innilega til hamingju með gullfallega prinsinn sinn sem kom í heiminn þann 19. nóvember síðastliðinn.. :) Æðislegt að Íris Hulda og Kata hafi eignast litla engla með 7 daga millibili! :):)

En jæjajæja.. held það sé best að dríbba sig í háttinn.. þar sem ég á að fara með fyrirlestur kl. 8:30 í fyrramálið !! Jeijj... 8|:S

BetaManroeHalloweenpartýljón býður góða nótt:) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2007 13:57:29 / beta

HERRA ÍSLAND 2007 - NETKOSNING

Jæja.. þá er Halli sæti bróðir að fara að taka þátt í Herra Ísland þann 21.nóvember næstkomandi:D

Netkosningin er byrjuð á www.ungfruisland.is og ALLIR að vera duglegir að kjósa minn mann!! ;)

Bein slóð á netkosninguna:

http://ungfruisland.is/netkosning.php?idprel=35

KOMA SVOOO hjálpum Halla í úrslit!! ;);):):):D

Kv. Beta


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 20:14:54 / beta

Beta & Óðinn = 6 ár :)

Vorum ekki orðin tæknileg árið 2001 þannig að fyrsta jólamyndin af okkur er víst bara til í albúmi heima á Akureyri en ekki á rafrænu formi:S

2002

2003

2004

2005

2006

2007

Jæja góðir hálsar.. játs við Óðinn gull eigum 6 ára afmæli í dag.. jeijj.. og þar sem ég hef ekkert að gera hérna á vatninu aldrei þessu vant þá gróf ég upp gamlar og góðar myndir af okkur hjúunum sem hafa verið teknar ár hvert :) Því miður á ég ekki mynd frá 2001 í tölvunni þar sem maður var rétt skriðinn uppúr grunnskóla og ekki búin að eignast digital vél..:S

Anyway..Get nú alveg fullyrt að myndirnar eru misfallegar..og er ég rétt að vona að við höfum nú breyst örlítið með árunum !! :haha:

12. nóvember er því klárlega merkisdagur í mínum huga og vil ég nota tækifærið og óska elsku Írisi Huldu minni og Gunnsa hjartanlega til hamingju með gullfallegu prinsessuna sem kom í heiminn á þessum góða degi !:):) Hún er æði og get ekki beðið eftir að fá að knúsa ykkur öll!! :D

Jæja.. er farin að gera eitthvað af viti...bingó og kaffihúsastemning á morgun hér á vatninu.. jeijj...allir velkomnir að koma og næla í vinningana með mér;);)

Væmna og ásfangna Beta kveður:P;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 179735
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
Könnun
Hvar býrðu ?





Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1198 dögum
Óðinn og Beta 7 ár